Fjallafélagið býður upp á ferðir á Hrútsfjallstinda (1.875m). Þetta er ein glæsilegasta fjallganga landsins með óviðjafnanlegu útsýni. Gangan á tindana er krefjandi og hentar því þeim sem hafa þegar gengið á Hvannadalshnúk og vilja takast á við fleiri stóra tinda. Gangan hefst við Hafrafell við sporð Svínafellsjökuls. Gengið er vestur með Hafrafellinu, inn með Skaftafellsjökli og upp á Hafrafellið uns komið er í Sveltisskarð. Þar þurfa göngumenn að lækka sig töluvert og missa þannig hæð sem þarf síðan að vinna upp þegar yfir skarðið er komið. Síðan er haldið að Vesturtindi og loks er gengið á Hátind sem er hæstur tindanna.
Dagsetning: 2012. (dagsetning auglýst síðar)
*Innifalið: Leiðsögn og öryggisbúnaður (broddar, belti og ísöxi).
Nánari upplýsingar: Búnaðarlisti - Skilmálar