+ Dagskrá
18. febrúar laugardagur Hafnarfjall
29. febrúar miðvikudagur Úlfarsfell
24. mars laugardagur Skarðsheiði - Heiðarhorn
28. mars miðvikudagur Helgafell ofan Hafnarfjarðar
14. apríl laugardagur Hekla
25. apríl miðvikudagur Vífilsfell
19. maí laugardagur Fjöllin í Þórsmörk
30. maí miðvikudagur Móskarðshnúkar
20. júní miðvikudagur Lambafellsgjá og Trölladyngja
23. júní laugardagur Hrútfell á KIli - Jónsmessuganga
*Innifalið: Leiðsögn. Hægt er að greiða með greiðslukorti með því að smella á "Bóka ferð" hnappinn hér á síðunni. Þeir sem vilja nýta sér makaafslátt sem er 35% eða skipta greiðslu hafi samband með tölvupósti.
Hámarksfjöldi: 35
Nánari upplýsingar
Göngurnar eru hugsaðar fyrir fólk sem er þegar með reynslu af fjallgöngum og í góðu gönguformi. Í hverjum mánuði verður ein krefjandi ganga á laugardegi og önnur léttari ganga á miðvikudagskvöldi. Miðvikudagsgöngurnar hefjast kl. 18:00 en laugardagsgöngurnar að morgni. Þátttakendur sjá sjálfir um ferðir að upphafsstað hverrar göngu en gert er ráð fyrir að hópurinn hittist á fyrirfram ákveðnum stað á Höfuðborgarsvæðinu og aki í samfloti. Ef verðurspá er óhagstæð fyrir ferð og betra veðri spáð daginn eftir mun ferðum í einhverjum tilvikum vera frestað um einn dag. Einnig kann að koma til að ferð verði frestað um lengri tíma vegna veðurs. Þá kann í einhverjum tilvikum að vera nauðsynlegt að gera aðrar breytingar á dagskránni svo sem að ganga á annað fjall en upphaflega var áætlað. Tilkynningar verða sendar til þátttakenda í tölvupósti í síðasta lagi kl. 12 daginn fyrir hverja göngu og þurfa því þátttakendur ávallt að fylgjast vel með tölvupósti sínum.
Öryggismál, tryggingar og skilmálar
Mikil áhersla er lögð á að tryggja hámarks öryggi í ferðum Fjallafélagsins. Mikilvægt er að þátttakendur fari eftir leiðbeiningum fararstjóra. Fjallgöngur fela ávallt í sér áhættu og eru þátttakendur á eigin ábyrgð í ferðum félagsins. Þátttakendur eru ekki tryggðir í ferðum með Fjallafélaginu og eru hvattir til að snúa sér til tryggingafélags síns og kaupa þar viðeigandi tryggingar. Skilmálar Fjallafélagsins eru aðgengilegir hér. Þátttökugjald verður ekki endurgreitt eftir að áskorunin hefst.