Við erum Fjallafélagið

Fjallafélagið ehf. hefur það markmið að skipuleggja vandaðar og umfram allt skemmtilegar fjallaferðir. Fagmennska á öllum sviðum er leiðarljósið okkar. Við leggjum metnað okkar í að fjallafélagar njóti ferðarinnar með okkur og upplifi samspil manns og náttúru á sterkan og jákvæðan hátt.
Við sérhæfum okkur í ferðum á hæstu og erfiðustu tinda landsins en bjóðum einnig upp á æfingagöngur á lægri og auðveldari fjöll.
Stofnandi Fjallafélagsins er Haraldur Örn Ólafsson fjallamaður og starfandi lögfræðingur. Hann hefur að baki yfir 20 ára farsælan feril í fjallamennsku og heimskautaferðum. Meðal leiðangra sem Haraldur hefur farið er Mt. Everest, Norðurpóllinn, Suðurpóllinn, Aconcagua, Mt. McKinley, Elbrus, Kilimanjaro, Mt. Blanc og Grænlandsjökull. Haraldur hefur um margra ára skeið verið fararstjóri hérlendis sem erlendis. Hann hefur leitt fjölda hópa á hæstu tinda landsins en einnig á fjöll erlendis og má þar nefna Mt. Blanc og Kilimanjaro.
+ Helstu upplýsingar:
Fjallafélagið ehf.
Kennitala: 560909-1010
Netfang: fjallafelagid@fjallafelagid.is
Sími: (+354) 561 0333
Heimilsfang: Brúnalandi 13, 108 Reykjavik
Reikningsnúmer Fjallafélagsins er: 515-26-560909
Vinsamlegast athugið að við erum ekki með fastan opnunartíma.
Tölvupóstum og símaskilaboðum verður svarað eins fljótt og kostur er
|