Nú er loksins komið að stóru stundinni. Veðurútlitið fyrir gönguna á Hvannadalshnúk er mjög gott. Eftir að hafa rætt við tvo veðurfræðinga hefur verið ákveðið að leggja af stað í gönguna frá Sandfelli kl. eitt í nótt (aðfararnótt laugardags). Við getum þá reiknað með að vera á hæsta tindi landsins um kl. 10 á morgun.