Fjallafélagið
Forsíða Ferðir Námskeið Myndir Leiðalýsingar Haraldur Örn Fjallafélagið
Fjallafélagið
Um okkur
Skilmálar
Fréttir
Búnaðarlistar
Jöklaferð
Almenn ferð
Fjallafélagið :: Fréttir :: Kilimanjaro, hvenær á að fara?

Kilimanjaro, hvenær á að fara?


Kilimanjaro (5.895m.) hefur fengið mikla athygli að undanförnu meðal íslensks fjallafólks. Ég hef farið þrisvar á þetta hæsta fjall Afríku og eru það meðal bestu fjallaferða sem ég hef farið.  Þar sem fjallið er nálægt miðbaug er hægt að fara á það á öllum árstímum. Það eru þó tvö tímabil sem eru skilgreind sem þurrkatímabil og kjósa flestir fjallgöngumenn að fara þá. Þessi tímabil eru annars vegar júlí til október og hins vegar janúar til mars. Á milli þessara tímasetninga eru regntímabil. Ókosturinn við þau er að þá getur verið drulla á stígum og minni líkur eru á björtu veðri á toppnum. Kosturinn við regntímabilin er þó að þá eru mun færri á ferðinni. Ég hef farið á fjallið í september í öll skiptin og alltaf fengið gott veður á toppnum.

Lesa má um eina af ferðum mínum á Kilimanjaro á myndasíðum. Fjallafélagið stefnir á að fara ferð á Kilimanjaro í náinni framtíð en dagsetning liggur þó ekki fyrir enn sem komið er. 

or   Sjá allar fréttir
Skilaboð
milli
Fjallafélagið ehf
milli
Kt.  560909-1010
milli
fjallafelagid@fjallafelagid.is 
milli
(+354)  561 0333    siminn
milli
milli