Veðurspáin er slæm fyrir þriðjudagskvöldið. 9000-metra kempur ætla því að ganga á Stóra-Meitil á miðvikudaginn. Við ætlum að hittast við Stóra-Meitil og hefja gönguna kl. 18:00. Þeir sem vilja vera í samfloti geta komið upp á Select við Vesturlandsveg og leggjum við af stað þaðan kl. 17:30. Ekið er framhjá Litlu Kaffistofunni og síðan beygt inn á Þrengslaveginn sem liggur til Þorlákshafnar. Eknir eru 3 km. eftir Þrengslavegi og er þar stoppað og hefst þar gangan.