Við hefjum starf Fjallafélagsins af krafti á nýju ári með nýrri tíu tinda áskorun með Haraldi Erni Ólafssyni. Gengið verður á tvo tinda í mánuði frá febrúar fram í júní. Þá verða í boði ferðir Hvannadalshnúk og Hrútsfjallstinda.
Fyrsta gangan í tíu tinda ákoruninni verður laugardaginn 18. febrúar á Hafnarfjall en síðan verður gengið tvisvar í mánuði út júní, einn laugardag og eitt miðvikudagskvöld í mánuði. Áskorunin endar svo á Jónsmessugöngu á Hrútfell á Kili þann 23. júní.
Þá verða einnig í boði ferðir á Hvannadalshnúk og Hrútsfjallstinda í maí.
Sem fyrr verður aðalfararstjóri í ferðunum Haraldur Örn Ólafsson auk einvala liðs af vönum fjallamönnum.
Dagskrá
18. febrúar laugardagur Hafnarfjall
29. febrúar miðvikudagur Úlfarsfell
24. mars laugardagur Skarðsheiði - Heiðarhorn
28. mars miðvikudagur Helgafell ofan Hafnarfjarðar
14. apríl laugardagur Hekla
25. apríl miðvikudagur Vífilsfell
19. maí laugardagur Fjöllin í Þórsmörk
30. maí miðvikudagur Móskarðshnúkar
20. júní miðvikudagur Lambafellsgjá og Trölladyngja
23. júní laugardagur Hrútfell á KIli - Jónsmessuganga
Nánari upplýsingar er að finna hér.