Jöklar á Íslandi eftir Helga Björnsson er glæsilegt rit sem kom út í lok síðasta árs. Helgi er einn fremsti jöklafræðingur landsins og byggir bókina á áratuga rannsóknum. Það fyrsta sem vekur eftirtekt er hversu efnismikil bókin er en auk þess eru í bókinni mikið af glæsilegum ljósmyndum sem styðja við efnið. Textinn er aðgengilegur öllum sem á annað borð hafa áhuga á íslenskum jöklum. Fjallafélagið mælir með þessari bók fyrir alla fjallgöngumenn og konur.