Í dag þriðjudag verður kynningarfundur á 9000-metra áksorun Fjallafélagsins og Símans. Fundurinn verður á Grand Hótel og hefst kl. 20. Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta og kynna sér dagskrána. Samtals eru fjallgöngurnar 14 og er hæðarhækkunin samtals yfir 9000-metrar. Æfingagöngurnar munu veita þátttakendum góðan grunn fyrir átökin við Hvannadalshnúk. Ekki er skilyrði að hafa reynslu af fjallgöngum og er því dagskráin við hæfi allra sem eru við góða heilsu.