Á morgun laugardaginn 30. janúar er fyrsta gangan í 9000-metra áskoruninni. Mæting er á bílastæðinu við Mógilsá kl. 10. Þetta er hin hefðbundna gönguleið á Esjuna og verður gengið upp að Steini. Gengnir verða fyrstu 580 metrarnir af rúmlega 9.000. Þeir sem enn eiga eftir að skrá sig geta fengið allar upplýsingar hér. Við hlökkum til að sjá ykkur öll. Það verður flott að fá góða útrás fyrir landsleikinn í handbolta sem hefst kl. 13.