Nú er búið að opna veginn inn í Þórsmörk. Brottför verður því nú klukkan 12:40 frá Olís stöðinni við Rauðavatn. Við minnum þátttakendur á að taka með sér höfuðljós eða vasaljós.
Bannað er að fara um Heljarkamb og verður því gengið upp á Morinsheiðina en þaðan má búast við glæsilegu útsýni í ljósaskiptunum yfir nýju sprunguna og hraunfossana niður bæði gilin.