Skilmálar
Við bókun ferðar skal greiða fullt þátttökugjald ferðar. Þátttökugjald skal greiða á heimasíðu félagsins um leið og bókað er í ferð. Fjallafélagið áskilur sér rétt til að aflýsa ferð ef ekki næst lágmarks þátttökufjöldi ferðar. Sé ferð aflýst er þátttökugjald endurgreitt að fullu.
Ef þátttakandi afbókar ferð með meira en fjögurra vikna fyrirvara endurgreiðist þátttökugjald að fullu. Afbóki þátttakandi ferð með tveggja til fjögurra vikna fyrirvara endurgreiðist helmingur þátttökugjalds ferðar. Afbóki þátttakandi ferð með minna en tveggja vikna fyrirvara heldur Fjallafélagið öllu þátttökugjaldi ferðar.
Fjallafélagið áskilur sér rétt til að gera fyrirvaralaust breytingar á auglýstri ferð, þar með talið breytingar á verði. Öll verð og aðrar upplýsingar um ferð eru birt með fyrirvara um villur.
Þátttakendum í ferðum Fjallafélagsins ber að fara í einu og öllu eftir leiðbeiningum fararstjóra félagsins. Þátttakendum er bent á að í fjallgöngum felst ávallt tiltekin áhætta og eru þátttakendur á eigin ábyrgð í ferðum. Þátttakendur eru ekki tryggðir í ferðum með Fjallafélaginu og eru hvattir til að snúa sér til tryggingafélags síns og kaupa þar viðeigandi tryggingar.
|