Fjallafélagið
Forsíða Ferðir Námskeið Myndir Leiðalýsingar Haraldur Örn Fjallafélagið
Leiðalýsingar
Móskarðshnjúkar
Hafnarfjall
Vífilsfell
Heiðarhorn
Vestursúla
Grímannsfell
Reykjadalur frá Hveragerði
Helgafell
Akrafjall
Úlfarsfell
Kerhólakambur
Hátindur
Leiðalýsingar :: Heiðarhorn

Heiðarhorn


Ökuferðin: Frá Reykjavík er ekið um Hvalfjarðargöng og áfram þjóðveg 1. Þegar komið er yfir Laxá er beygt til hægri Leirársveitarveg (504). Ekið er þar til komið er að afleggjara að bæjunum Tunga og Efra-Skarð og hefst þar gangan (sjá kort).

Gangan: Frá Efra-Skarði er gengið á brattann og haldið undir Skarðshyrnuna og vestur með henni. Gengið er upp í skarð á milli Rauðahnúks og Skarðshyrnu og er síðan haldið upp hrygginn þar til komið er upp á hyrnuna. Þá tekur við breiður og aflíðandi hryggur. Síðasti hlutinn upp á sjálft Heðarhornið (1.053m.) er nokkuð brattur. Hægt er að fara sömu leið niður eða halda niður í Skarðsdal og ganga niður með Skarðsá.

Heildargöngutími: Ganga tekur í heild um 6 tíma (upp og niður).

Hæðarhækkun: 973 metrar

Gönguvegalengd: 11,5 kílómetrar (upp og niður)

+ Myndir


    
Skilaboð
milli
Fjallafélagið ehf
milli
Kt.  560909-1010
milli
fjallafelagid@fjallafelagid.is 
milli
(+354)  561 0333    siminn
milli
milli