Fjallafélagið
Forsíða Ferðir Námskeið Myndir Leiðalýsingar Haraldur Örn Fjallafélagið
Námskeið og fyrirlestrar
Fjallamennska - Grunnnámskeið
GPS Námskeið
Fyrirlestrar
Námskeið og fyrirlestrar

Námskeið og fyrirlestrar

Fjallafélagið býður upp á kennslu í þeim fræðum sem fjallamenn þurfa að kunna skil á til að getað ferðast á eigin vegum í fjalllendi. Til að tryggja gæði og fagmennsku námskeiðanna verða leiðbeinendur valdir úr hópi fremstu fjallamanna landsins.

Við mótun á dagskrá námskeiðanna verður litið til þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað í fjallamennsku síðustu ár sem og byggt á gömlum grunni sem komin er áratuga reynsla á.

Hjá Fjallafélaginu er einnig hægt að bóka fyrirlestra Haralds Arnar Ólafssonar um heimskauta- og háfjallaleiðangra.

+ Námskeið í boði

Fjallamennska - Grunnnámskeið

Námskeiðið er grunnnámskeið og er markmið þess að gera þátttakendum kleift að ferðast á eigin vegum á fjöllum að vetrarlagi. Farið verður yfir notkun tæknilegs búnaðar svo sem klifurlínu, mannbrodda, klifurbelta og ísaxa. Kennd verður ísaxarbremsa og helstu aðverðir við tryggingar. Farið verður yfir jöklaferðir og mikilvæg atriði varðandi snjóflóð.

+ Sjá nánar
Hnjukurinn.jpg
GPS Námskeið

Á námskeiðinu verður kennd notkun GPS staðsetningartækja. Farið verður yfir grunnatriði GPS kerfisins, hvernig staðsetning er fundin, rafræn kort, hvernig taka eigi punkta, vista leiðir og tengingu við tölvu. Fyrri daginn verður farið yfir grunnatriði tækjanna og notkunarmöguleika en seinni daginn verða tækin prófuð á vettvangi. Ætlast er til að þátttakendur eigi nýleg GPS staðsetningartæki með Íslandskorti. 

+ Sjá nánar
oregon550.jpg
Fyrirlestrar

Haraldur Örn flytur vandaða fyrirlestra á ráðstefnum og fundum. 

+ Sjá nánar
Vinson-13.jpg
Skilaboð
milli
Fjallafélagið ehf
milli
Kt.  560909-1010
milli
fjallafelagid@fjallafelagid.is 
milli
(+354)  561 0333    siminn
milli
milli